mánudagur, október 30, 2006
Nýr sími...nýtt blogg
Þetta var svona það helsta í fréttum núna...
Þangað til næst.....adios
laugardagur, október 21, 2006
Síðan seinast...
Er búinn að vera í haustfríi undanfarna viku og hef notið þess að vera með fjölskyldunni og svona. Þurfti reyndar að læra svolítið en það er ekkert alvarlegt.
Ég tók mér frí frá fótbolta, eins og allir reyndar, og sleppti leik seinustu helgi vegna þess að ég
var að vinna hjá KTT í Lindö sem að er ein af stærri skipasmíðastöðvum í evrópu og eru þeir í þessum töluðu orðum að smíða þriðja af fimm (held ég) super cargo skipum sem að eru með 10000 hestafla mótor og tekur 11000 gámaeiningar. Skipið á myndinni er Estelle Maersk og er nýjasta skipið. Það er svolítið gaman að sjá hvernig svona skip er smíðað. Það er gert í mörgum hlutum og svo koma lestalúgur og stýrishús tilbúið frá Eistlandi og Letlandi...og veskú eitt stykki skip.Mér finnst þetta fín vinna, gefur vel í vasann en er frekar skítug en eins og ég segi þá er þetta fínt, fínir vinnufélagar og fínir vinnutímar (07-15.30).
Af okkur er svosem ekki mikið að frétta annað, Viktor Daði er alltaf að verða betri og betri í því að standa upp og svona, og rétt áðann þá prufuðum við að gefa honum smá vatn í glas með röri og það tók hann innan við 5 mín að átta sig á hvað þurfti að gera og hann gerði sér lítið fyrir og kláraði úr glasinu á nó tæm. Ég gæti ekki verið stoltari af stráknum mínum.
Við höfum ekkert farið í kolonigarðinn okkar í haustfríinu eins og til stóð en ég kíki í vikunni og reyni að koma upp hliðinu sem að ég er alltaf á leiðinni að smíða.
Við erum svo alltaf að pæla í þvi
hvernig við viljum haga garðinum, hvað á að verða blómabeð og hvar á húsið að vera og hvernig hús eigum við að setja í garðinn og svona...alltaf nóg að pæla. Ég væri frekar sáttur ef að einhver gæti bent mér á einn stórann gagnagrunn um hvernig á að vinna í garði og svona, hvernig á að búa til kartöflugarða og svona....
Á meðan ég man, ég er farinn að notast við BLOGGER BETA og þá kemur hann eitthvað asnalega út í Internet Explorer en bloggi
ð virðist vera flott í Firefox.
Þið dánlódið þessu bara og skoðið bloggið í því...ég var að vonast eftir að nýjasta útgáfan af Explorer (7.0) myndi laga þetta vandamál en svo er nú víst ekki.....þið reddið þessu ef að þið viljið endilega skoða bloggið.
Þetta verða lokaorðin að sinni, þangað til næst....over and out.
sunnudagur, október 08, 2006
Rigning........og meira
Fór annars að spila fótbolta í gær með Ísafold. Gekk fínt að minni hálfu allavegana (að mér finnst), að sjálfsögðu ringdi það mikið að völlurinn fór á flot á tímabili og þetta líktist aðallega vatnapóló. Lék mína venjulega stöðu, hægri bak, átti fínar reddingar og ég held að ég geti sagt að ekkert alvarlegt gerðist á meðan ég var í minni stöðu. Rétt fyrir lok fyrri hálfleikst þá var ég tæklaður illa rétt fyrir neðan hné sem er náttúrulega stórhættulegt, guttinn fékk gult og þar af leiðandi 10 mínútur út af, ég varð að fara útaf líka til að jafna mig aðeins, en við vorum ekki með skiptimann fyrr en í seinni hálfleik. Er með flottar stríðsrendur á sköflungnum eftir takkana hjá andstæðingnum, sé það núna að þetta hefði geta farið rosalega illa en sem betur fer þá......
Á föstudaginn var hið árlega haustgrill Rasmus Rask. Ótrúlegt hvað fólk getur ekki pælt í einu né neinu, mæta á staðinn og ætlast til að grillin séu heit og tilbúin en dettur ekki í hug að koma með sín eigin og gera klárt fyrir sig og sína. En svona er þetta víst bara. Eftir matinn var sungið og trallað á gíta, langt síðan það hefur gerst hér á RRK. Þetta var heljarinar fjör en ég var farinn heim um kl. 23.30, nennti ekki meir...
Hvað meira....
Haukur og Heiðrún eru orðin foreldrar. TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ. Eignuðust lítinn strák, 16 merkur og hann er rosalega myndarlegur. Ætlum að kíkja á þau á eftir, hlakka til að sjá krílið.
Annað er það ekki í bili...stutt í haustfrí hjá mér og þá verður gert eitthvað skemmtilegt.
mánudagur, október 02, 2006
Fréttir...
Hvað hefur verið að gerast síðan síðast....hmmmmmm.....
Var veikur, ekki gaman, en er samt að jafna mig í rólegheitunum. Hvað meira, við erum orðnir stoltir eigendur að Kolonigarði hér í Odense. Kolonigarður er svona litlir garðar sem að fólk getur komið og ræktað grænmeti, ávexti og ber og svona, haft falleg blóm og svo eru yfirleitt svona einhver hús á þessum lóðum. Í okkar garði er jú hús, en það er fúið og ónýtt þannig að það verður rifið við tækifæri og svo vonandi byggt nýtt í staðinn. Þetta er á góðum rólegum stað í útjaðri Odense og það eru klósett og svona í sameiginlegum sal nálægt.
Nágrannarnir okkar eru ekki af verri endanum. Sjálfstæðismaðurinn Pétur Ottesen og fjölskylda eru í garðinum fyrir neðan okkur, tilvonandi félagi minn í hljómsveitinni Los Duos, Davíð og fjölskylda...svo við hliðina á okkur er litil kallinn hann Elli með sína familie.
Jæja...skólinn kallar...verð víst að sinna honum ef ég á að klára þetta einhverntímann..
Við heyrumst síðar.