....en það hefur bara svo mikið gerst síðan seinast......
Það er náttúrulega brjálað að gera hjá mér í vinnunni.....og ég á að mæta klukkan 06 í fyrramálið sem að þýðir að ég verð vaknaður kl 04.45 til þess að hjóla í ca 25 mínútur til að pakka fleiri, fleiri pöntunum út um allan heim (aðallega Danmörk og Þýskaland).
Við Þóra erum farin að íhuga sumarfríið okkar. Okkur langar að ferðast ódýrt hér í Danmörku, nýta okkur lestirnar eða rúturnar...taka tjaldið okkar og svefnpokana og gista hér og þar um landið sem að við búum í. Annars komum við til Íslands um miðjan júlí og verðum í 2 vikur. Þá ætlum við að hitta fjölskyldur okkar og vini og njóta þess að vera til. Kíkja kanski í smá útilegu, svona ekta íslenska....það er alltaf gaman.
En annað er ekki að frétta, er að klára umsóknina í háskólann hér í Odense, vantar eitt og annað til þess að geta sent hana, en er að sanka að mér efninu...........
Læt þetta nægja í bili...
p.s. er með nýja uppskrift hér, Sumar kartöflusalat. Þetta salat er snilld, og fitulítið.
þriðjudagur, maí 31, 2005
þriðjudagur, maí 10, 2005
Góðar fréttir...
Fékk góðar fréttir um daginn.....ekkert í sambandi við vinnu eða svoleiðis, bara svona típískar góðar fréttir...
Af mér er það að frétta að ég er að vega og meta lífið mitt þessa dagana, hef oft fengið einfaldari verkefni en það og því hef ég verið uppstökkur undanfarið. Vinnan er kanski ekki að einfalda hlutina, alltaf erfitt að vinna á stað þar sem enginn vinnumórall er...ekki einusinni boðið góðan daginn. Allavegana, þá eru þetta erfiðir tímar fyrir mig þar sem að ég verð eiginlega að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór....það er kominn tími til. Vil ég þrjóskast við og vera á kokkavöktum til sextugs eða vil ég finna mér nám sem að fer betur með mig í ellinni.
Komst einnig að því um daginn að við Þóra eigum von á gestum í sumar...alls 10 stykkjum í einni kippu. Jú það eru þær Lilja og Jóhanna móðursystur ("stórusystur")mínar sem eru að koma með menn og börn. Er nú búinn að hanna prógram fyrir allan hópinn....kaupa kolonigarð, skella köllunum þangað, skella börnunum í sund eða í dýragarðinn og kellunum í búðir....hvernig líst ykkur á planið....?
læt þetta duga í bili......ég ætla að fara að huxa meira............
bæíbili

miðvikudagur, maí 04, 2005
Lífið...
...er ekki alveg að leika við mig núna.
Ég er búinn að fá svar frá honum Jakob á Restaurant Klitgaard. Hann getur ekki notað mig frekar en aðrir sem að ég hef sótt um hjá. Þetta var í rauninni dropinn sem að fyllti mælinn. Núna er það að finna eitthvað annað...
...ég vildi bara láta ykkur vita það.

sunnudagur, maí 01, 2005
Er á lífi...
jamms....er bara ekki búinn að nenna mikið að skrifa. Hef verið frekar þreyttur undanfarið, ný vinna, fótbolti, vinna, vinna og svo framvegis.
Vinnan er ennþá frekar ömurleg, betra en ekkert segja sumir, en að vinna á stað sem að enginn segir neitt í pásum og matartímum er ekki mikið spennandi vinna að mínu mati. Það besta við þessa vikur er að þetta er stutt vinnuvika, bara 3 dagar. Ég ætla að taka því með einstakri ró næstu helgi, alveg eins og þessa helgi.
Dagurinn í dag er búinn að vera yndislegur. Brunch á Café Kræz með öllum á Raskinu, þar var setið í 3 tíma. Eftir það var skellt sér í keilu og síðan heim aftur. Frábær dagur, ég er ennþá svo saddur að ég veit ekki alveg hvort að ég eldi sunnudagsmat. En annað er ekki að frétta í augnablikinu, ég hef ekkert heyrt frá veitingastaðnum en það á vonandi eftir að koma eitthvað í ljós í þessari eða næstu viku. VONANDI, ég er orðinn frekar óþreyjufullur.
Annað hef ég í raun ekki að segja þannig að ég læt þetta duga í bili.........
p.s. skelli inn einni sumaruppskrift bara svona í tilefni dagsins.

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)