Já þá er hún búin þessi helgi.
Það var nú ekki mikið gert svosem. Ef ég byrja á fimmtudag þá fórum við Þóra í graskerskaup og skárum út í það glæsilega norn sem að þið getið séð á myndasíðunni okkar.
Á föstudaginn þá var Þóra mestan daginn í skólanum og ég heima að laga til. Seinnipartinn þá fór ég að versla veigar og meira fyrir lokahóf knattspyrnudeildar Ísafoldar sem haldið var á laugardaginn. Á föstudagskvöld var lítið gert, aðallega slappað af bara.
Á laugardeginum fór ég snemma út (ca.12) keypti mér Chivas Regal pela til að taka með í partýið um kveldið. Skellti mér í bíltúr til að sækja félagana í fótboltanum, því að við ætluðum að skella okkur í golf rétt fyrir utan Odense. Þetta var fínasti dagur þarna á golfvellinum, spilað var eftir einhverju Texas Skramble fyrirkomulagi og mér gekk bara vel, eiginlega rosalega vel miðað við að ég hef aldrei spilað þessa íþrótt fyrr. Átti nokkur góð skot og nokkur (líklegast fleiri) slæm skot.
Um kvöldið var komið að því að drekka þessa fimm bjórkassa og 5 skotflöskur sem að voru keyptar á föstudeginum. Var þetta heljarinnar geim og held ég að allir hafi skemmt sér vel. Gefin voru verðlaun fyrir hitt og þetta og var undirritaður valinn kynþokkafyllsti leikmaðurinn fyrir árið 2005. Myndirnar koma bráðlega.
Eins og búist var við þá lá ég í þynku á sunnudeginum, fórum samt í BILKA til að versla þar sem að ekkert var til í ísskápnum. Fórum svo út að borða og ætluðum í bíó en maturinn tafðist þannig að það var bara farið á vídeoleiguna og sótt ein góð. Horfðum á Örninn og svo á DVD....
Fínasta helgi í alla staði.
Næsta helgi verður svo í Kaupmannahöfn með Ingvari og Írisi, Jóa og Rögnu og Gerðu (held ég).
p.s. hver er Harpa sem að commentaði hjá mér í seinasta bloggi???
mánudagur, október 31, 2005
miðvikudagur, október 26, 2005
Jólin koma...
Var í Bilka áðan og viti menn.....ÞAÐ ER KOMIÐ JÓLASKRAUT Í BÚÐINA.
FOKK hvað þetta er snemmt, og fólk náttúrulega var að kaupa þetta rusl.
Come on people það er bara OKTÓBER. Ég er ekki að skilja þetta bull. Svo þegar jólin eru loksins komin þá fæst ekkert jólaskraut eða jóla-neitt.
Ég vildi bara að þið fengjuð að vita þetta.

sunnudagur, október 23, 2005
Haustfrí
Vika 42 fer, í öllum skólum í danmörku, í það að vera í fríi. Minn skóli var ekki unantekin um það. Kartoffelfrí er þetta kallað en við íslendingarnir köllum þetta bara haustfrí því þetta er jú frí að hausti til. Sumir nota þetta frí til þess að fara erlendis og það var nákvæmlega það sem að við Þóra gerðum.
Kl. ca. 15.30 lentum við Þóra á Keflavík airport án þess að nokkur sála vissi af því að undantekinni einni lítilli fjölskyldu í skerjafirðinum (einhver varð nú að sækja okkur og flestir úr þeirri fjölskyldu að fara til London). Vorum komin til Reykjavíkur rúmlega klukkustund síðar í ágætis veðri. Hringdum í mæður okkar og tilkynntum komu okkar til Íslands, þær voru mislengi að ná því að við værum á landinu og á heimili foreldra minna...hehe planið virkaði.
Hittum alla þá sem að við ætluðum að hitta fyrir utan hana Írisi Lenu en við sendum henni bara kveðjur, og hittum hana eftir 2 vikur í Copenhagen. Allir aðrir fá bara kveðjur...
Dvöldum á Íslandi í fimm daga og komum aftur til Odense seinnipart miðvikudags, ég með kvef og fínirí.
Á fimmtudeginum var brunað með fólksvagninn í viðgerð á verkstæði í Hamburg, Þýskalandi. Vorum fyrir utan verkstæðið um kl. 12.00 eftir um þriggja tíma keyrslu á hraðbrautum. Dvöldum í miðborg Hamborgar í ca. 4 tíma en þá var bíllinn tilbúinn og tími kominn til þess að halda heim á leið. Á leið okkar út úr borginni þá rákumst við á IKEA skilti (þeir sem að þekkja okkur ættu að vita að okkur finnst svolítið gaman að skoða þá verslanir), ákváðum að kíkja rétt inn og viti menn náðum að eyða rúmum tveimur tímum í einni þeirri stærstu verslun sem að ég hef nokkru sinni komið inn í, vel þess virði að skoða þetta. Þeir hefðu getað tekið verslun okkar Odense búa og sett allt það sem inni í henni er inn á lager hjá sér og átt pláss til þess að leika fótbolta á löglegum velli með 11 á móti 11. Svo stór var bara lagerinn. Svo að ég tali nú ekki um verslunina sjálfa, svolítið öðruvísi að koma inn í 64 fm íbúð inni í miðri búð. En úrvalið var líka svolítið öðruvísi og skemmtilegt að sjá vörur sem að maður kemur aldrey til með að sjá í svona verlsun í DK eða á Íslandi.
En nóg um það...
Föstudagurinn fór mestur í það að vera veikur heima fékk samt góða heimsókn frá þeim Jóa og Rögnu.
Laugardagurinn fór í það að halda áfram að vera veikur, en svo um kvöldið fórum við í mat í Fuglsang og horfðum á 50 ára afmælispartý Eurovision þar sem að Waterloo með ABBA var kosið all time besta Eurovision lagið. Vorum komin heim í kring um 01.00
Sunnudagurinn er senn búinn og ég er búinn að spila smá fótbolta, varð að hörfa af velli eftir að hafa fengið högg á hægra eyra með tilheyrandi hausverk. Það er allt að lagast samt. Unnum leikinn 6-2 á móti DSIO sem er stúdentaliðið hér í Odense. Lauk deginum með því að steikja smá nautakjöt með Whiskýsósu og frönskum kartöflum......
Góðar stundir.

miðvikudagur, október 05, 2005
Fór í bíó...
á föstudaginn. Sá Charlie and the Choklade factory með Jhonny Depp í aðalhlutverki. Mér fannst hún góð, fyndin á köflum og skrautleg...ágætis afþreying.
Hef annars ekki mikið annað að segja frá. Skólinn gengur vel, mikið að lesa og er núna að reyna að skipuleggja fríið í þarnæstu viku, verð að klára Cry Freedom og helst líka Mrs. Dalloway...svona er nú það, jú ég verð helst líka að skilja enska setningafræði.....
Jamm og jæja, ef einhver getur sagt mér fréttir þá eru þær velkomnar, annars bið ég bara að heilsa í bili..

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)