fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Batman.is

Ég var að skoða batman.is eins og oft áður og rakst þá á hollenskt video sem að sýnir verstu keppendurna árið 2004 í Idol í Hollandi syngja á fótboltaleik, á leikvangi þar sem hvert sæti er upptekið...þetta fannst mér fyndið, þetta er alveg það versta sem að ég hef séð þessa Idol keppni gera við lélegestu keppendurna sína....skoðið þetta hér, þetta er fyndið.

Annars gæti verið að ég væri að fara að hætta í skólanum núna í mars....það kemur allt í ljós vonandi í næstu viku....ég er jafnvel að fara að fá samning.....en eins og ég sagði, kemur í ljós á komandi vikum....vonandi strax í næstu viku...

Svo vil ég benda á að það verður opið hús í flestum, ef ekki öllum framhalds og háskólum hér í Odense á laugardaginn milli 10 og 14, þar á meðal í Dalum Tekniske skole, eða Dalum Uddannelses Center eins og þetta heitir víst í dag. En allavegana, þarna verð ég í eldhúsi að elda og undirbúa mat allan daginn (stofa 151), allir velkomnir að kíkja á mig og smakka það sem ég er að gera og aðrir í skólanum...

Nenni ekki meir.....

mánudagur, febrúar 23, 2004

Enn einn staðurinn til að sækja um á...

Ég bý nú svo vel að ég á nokkra svona kennara"vini" (ég er hálfgerð sleikja), og það voru tveir kennarar einmitt í dag að pressa á mig að hringja í hann Patrik á Falsled Kro, sem er við Faaborg, sem er á sunnanverðu Fjóni (Fyn). Það tekur um 1 klst. að fara þangað með rútu sem er ekki slæmt...

Þetta virðist vera flottur staður, þetta er svona lítið hótel þar sem að ódýrasta herbergið kostar um 850 d.kr. og dýrasta er á um 3000 d.kr. og við erum þá að tala um nóttina...brjálaðir prísar.

Annars er ekki mikið að frétta, við erum enn í pattstöðu vegna íbúðarmála á Skt. Hansgade, en þeir voru nú svo elskulegir að senda okkur reikning fyrir marsmánuð, sem við ætlum náttúrulega ekki að borga....þeir hjá leigjendasamtökunum eru farnir að hrista hausinn ansi mikið, bara að þeir hristi hann ekki af sér!!!

Þetta er nóg í bili, heyrumst

laugardagur, febrúar 21, 2004

Breytt útlit

Ég var að gera tilraunir um að breyta útlitinu í samræmi við heimasíðu sem að ég er að smíða í rólegheitunum....þetta er ekki alveg að virka þar sem að sumir hlekkir eru gráir og sumir svartir...og svo vantar mig að koma inn eins og einni mynd...ef einhver vill endilega hjálpa mér er það vel þegið.....ég er svoddan auli í svona málum...

Annars bara góða helgi

föstudagur, febrúar 20, 2004

"Illu er best af lokið"

Og það er svo sannarlega rétt....ég er núna búinn að hitta hann John Koford sem er yfirkokkur á Sortebro Kro og Under Lindetræet og hann var bara hress, sér í lagi með að ég var íslendingur, en eins og ég hef kanski sagt ykkur er þar fyrir einn ungur drengur sem heitir Pálmi og er hann víst að gera góða hluti þarna og í skólanum.

Svo þegar ég var búinn hjá Koford þá fór ég í Bilka og verslaði í kjötsúpu sem ég er að elda núna en ætla að bjóða á morgun, en þessar súpur eru alltaf mikið betri dagsgamlar....

Þegar það var búið þá fór ég með fimm umsóknir á pósthúsið og svo er það bara að bíða og sjá hvað gerist...

Ég þakka kærlega fyrir alla góðu straumana, en þurftuð þið endilega að senda þá svona sterka svo að það skyldi springa á hjólinu mínu hjá Bilka, vitið þið ekki hvað það er langt heim til mín frá Bilka...(hehe:-))

Hilsen

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Sveitin

Jæja þá er fríið hálfnað og við Þóra ekki búin að nærri því öllu sem við þurfum að gera í þessu blessaða fríi.

Við náðum samt að skreppa í sveitina til Jóa og Rögnu til þess að borða góðan mat (sem ég eldaði náttúrulega), drekka bjór og spila spil (og tónlist). Þar hittum við Kiddó, Kristínu og börn og var kátt á hjalla. Þegar við vorum farin að geispa óvenju mikið þá skriðum við til rekkju og það var vaknað um kl. 9.30 og svo vorum við komin til byggða um kl. 15.00. Í gær gerðum við Jói gestahjólið okkar Þóru klárt og það er ekkert smá flott....eld,eld rautt DBS hjól með 4 gírum og körfu að framan....mjög lekkert...

Þegar við vorum komin heim í dag þá var ég orðinn eitthvað slappur og lagðist bara undir feld skjálfandi úr kulda en er allur að koma til núna, ég verð að vera hress þegar ég fer með umsóknir á veitingastaði á morgun, mig hlakkar ekki til. Ég verð nógu stressaður þegar ég fer í atvinnuleit á íslandi hvað þá í Danmörku á dönsku, jeg glæder mig ikke. En svona er þetta, maður verður að takast á við þetta og vera hugrakkur.......

Annars er ég klár með 6 umsóknir og er ég spenntastur yfir einum stað sem er staðsettur hér í Odense, eða réttara sagt í Fynske Landsby og heitir hann Sortebro Kro, og þykir yfirkokkurinn þar mjög góður og virtur, hann er einnig með annan stað hér í Odense og heitir hann Under Lindetræet og er hann í svo kölluðu H.C. Andersenhverfi og þykir mjög flottur, rómantískur og góður...svo eru nokkrir aðrir sem eru mjög fínir og einn er hér rétt fyrir utan Odense og er hann talinn af mörgum einn af flottustu veitingastöðunum í Danmörku, en þar er einmitt mjög erfitt að komast að. Eigandinn og yfirkokkurinn þar hefur meðal annars verði kokkur um borð í Dannebrog og er hann líka mjög virtur í þessum heimi....staðurinn er í Munkebo (um 10-20 mín frá miðbæ Odense) og heitir Munkebo Kro.
Ekki láta þetta Kro tal villa um fyrir ykkur, þetta eru ekki neinar sveitakrár eins í UK, heldur eru þetta fyrsta klassa veitingastaðir sem gott væri að komast að....

Þannig að allir að vona það besta og gefa mér jákvæðar hugsanir á morgun (20. feb. 2004)...

Fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða hvað er í boði í veitingahúsaflórunni hér í Odense geta skoðað þetta úrval.

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Orgitta Gargdal

Þeir sem misstu af Orgittu Gargdal geta kíkt hér.
Uppfærslur...

Ég ákvað í dag að bæta við nokkrum sem að blogga hér á listann til hliðar....

Svo er ég búinn að útbúa 6 umsóknir í dag þannig að þær fara í póst á morgun, og þá fer allt í gang vonandi....

Annars er ekkert að frétta..

sunnudagur, febrúar 15, 2004

Þorrablótstörnin búin...

...í bili allavegana.

Við lögðum af stað 8 ungir Odensebúar, og stefndum í átt til Norðurs eða nánar tiltekið Horsens. Takmarkið var að fara að vinna á þorrablóti Íslendingafélagsins í Horsens. Náðum takmarkinu og vorum komin heim um kl. 06.00.

Blótið var svosem alltílagi, en að mínu mati þá náði hljómsveitin Írafár ekki að skila sínu besta þarna, það vantaði Birgittu, en það skipti engu máli því að það heyrðist ekki eitt einasta Írafárslag allt kvöldið......

...litla systir Birgittu Haukdal, hún Orgitta Gargdal (ég) steig á stokk og tók gamla Gloríu Gaynor Diskósmellin I will survive við mikinn fögnuð viðstaddra................hehehe (alltaf gaman af einkaflippi)...

Annars er lítið að frétta...við erum komin í vetrarfrí, þó svo að það sé nú ekki mikill vetur í Odense, sól og vorveður með meiru.....

Ég blogga kanski meira síðar...

Myndir af Þorrablóti Íslendingafélagsins í Odense er að finna á heimasíðu Á móti sól

Góðar stundir

fimmtudagur, febrúar 12, 2004

HEHE alltaf gaman í verklegu...

Jújú, í dag var verklegt í skólanum og áttum við að elda mismunandi hálftilbúinn og heimagerðan mat. Minn hópur átti að baka pizzu, lasagna og búa til tómatsúpu með brauði, en um leið þá fengum við í hendurnar frosið tilbúið lasagna, frosna pizzu, pakkasúpu og frosið brauð. Það þarf náttúrulega ekki að nefna það að heimagerði maturinn var mikið mikið betri.....en það var nú ekki það skemmtilegasta við daginn. Því í dag náði ég að gera kokkakennarann minn hann Per kjaftstopp, og ekki bara það, heldur náði ég að láta hann næstum því kúgast af viðbjóði....hehe. Mér finnst það fyndið vegna þess að ég var að gefa honum mat sem að hann hafði aldrei séð áður, aðeins heyrt talað um og svona næstum því ekki trúað að nokkur maður gæti borðað þetta........á boðstólnum hjá mér í dag var:

Hrútspungar (får nøsser), hákarl (haj) og harðfiskur (tørfisk) og eins og ég sagði þá fanst honum Per þetta vera alger viðbjóður og skirpti hann út úr sér hverjum bita....hehehe

En það var nú ekki búið þar. Hann Per títtnefndi er mikill húmoristi og hefur sérlega ánægju á því að hrekkja aðra, og það er nákvæmlega það sem við fórum að gera. Við vorum eins og smástrákar þegar við gengum um skólan að leita uppi kennara sem vildu ólmir prufa þetta nýjasta á markaðinum (hehe) flestum fannst þetta viðbjóður og þegar við sögðum hvað þetta væri og hvernig þetta væri verkað (hákarlinn aðallega) þá lá við að fólk ældi......mér fannst þetta æðislega gaman, því að mér finnst þetta svo góður matur. En það var samt einn kennari sem að sagði okkur að þetta væri nú ekki það versta sem að hann hafði lent í. Hann var einusinni á ráðstefnu og lenti í herbergi með færeyjing og hann sagði að færeyingurinn hefði verið með eitthvað þurrkað kjöt og svona harðfisk, það var ekki það versta, það versta var að þetta lyktaði svo illa því að kauði lagði þetta alltaf á einhverja hillu sem að var fyrir ofan ofnin. Hugsið ykkur að lenda í herbergi með islending sem að væri með "góðann" hákarl og geymdi hann á disk á hillu fyrir ofan ofninn.....ooojjjjjjbara...

Allavegana voru samt allir voða ánægðir að hafa fengið að smakka þetta, þó svo að þeim hafi fundist þetta vont........og ég hló bara........hehehehehehehehehehehehehe

Hákarl er góður en hrútspungar eru betri.......

góðar stundir

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Þriðjudagur til þrautar...

Ekki það að dagurinn minn hafi verið nokkuð erfiður, vaknaði seint fór í einn tíma í skólanum og hjólaði heim, reyndar var gott veður þegar ég fór í skólann, en þegar ég var nú á leiðinni heim var byrjað að rigna og mikið ofsalega var rigningin köld, já þetta var svona næstum því slydda en samt ísköld rigning....og ég bara á flíspeysunni....

Ég hef ekki sett inn myndir af þorrablótinu en ég hef komist yfir þrjár heimasíður sem að innihalda nokkuð góðar myndir af þessu fína mannamóti...................

Hún Sara, sem var kynnirinn okkar er með myndir hér, Bryndís var í nefndinni er með myndir hér og svo er það hún Elva sem að ég held að sé vinkona hennar Söru, sem er með myndir hér...

Takið eftir myndarlega stráknum með rasskynnarnar (ég)!!!

mánudagur, febrúar 09, 2004

Jæja þá er þessi helgi afstaðinn...

...jú og líka þorrablót Íslendingafélagsins í Odense. Þetta var nú meiri törnin, 22 tímar á laugardaginn, tjútt frá kl. 18 til kl. 06.30 sem sé 12,5 tímar í hreint djamm. Það er nú langt síðan ég hef tekið svona á því. Annars tókst þetta með ágætum. Maturinn var góður, og hljómsveitin var frábær. Skemmtiatriðin heppnuðust vel og kynnarnir þau Sara og Elvar voru frábær. Semsé þeir sem að fóru EKKI á þetta blót, misstu af miklu,að mínu mati.
Reyndar var gærdagurinn ekki svo góður, ég var rifinn upp kl. 9.30 til þess að fara niður í hús og taka restina af dótinu og skila því niður í íslendingafélag, var kominn heim aftur um kl. 13 og kl 14.30 var slökknað á mér aftur þannig að það var ekkert gert í gær, allavegana ekki af minni hálfu, ég held að Þóra hafi náð að læra eitthvað en ég var sofandi........fórum svo frekar seint að sofa í gær, þannig að maður er ennþá þreyttur í dag..............ekki gott, vonandi fer þetta að lagast, annars hefur maður næstu viku til þess að jafna sig, það er nefnilega vetrarfrí hjá okkur. Maður byrjar fríið á því að fara á Þorrablót í Horsens og það verður örugglega annað eins djamm, en ég verð víst á rútu þannig að ég verð bara í gosinu............

Jæja...nóg í bili, nú tekur lærdómur við....

miðvikudagur, febrúar 04, 2004

Kominn með e-mail

Já loksins, það tók sinn tíma....

Við Þóra erum nú komin með eftirfarandi e-mail:

spez@rrk.kollegienet.dk

og heimilisfangið okkar er:

Elmelundsvej 4 #1307
5200 Odense V
Danmark

og svo erum við með símanúmer en það á að vera dottið út, en um að gera að prufa:

+45 65 71 01 37

Jæjaj þá er það orðið ljóst....

Meira blogg síðar

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

Jæja þá fer að líða að því...

Já það fer að koma að því að ég fái internet tengingu í íbúðina en hingað til hef ég þurft að notast við netið í skólanum, þetta hefur gert manni svolítið erfitt fyrir þegar maður er að reyna að gera heimavinnunna. Ekki það að það er mikil heimavinna en það er nú svolítil og ég er ekki að nenna að gera hana hér í skólanum (er í skólanum og á að vera að gera eitthvað næringarfræðiverkefni, en ég er búinn að fá það metið en er samt að bíða eftir bréfinu sem gerir það official). Tölvurnar sem að við höfum aðgang að eru nefnilega ekki nema svona um 20 ára gamlar og svolítið seinar, það er eins og skólinn setji framm elstu tölvurnar fyrir nemendur en eru svo að kaupa nýjar og flottar fyrir kennara og starfsfólk.

En hvað um það, ég er ekki að láta það fara mikið í taugarnar á mér.....

Nú fer að koma vetrarfrí og við Þóra vitum ekki hvað við eigum að gera af okkur,l ég kom með hugmynd um það að slappa bara af, sauma gardínur og fara kanski í 2 daga heimsókn í sveitina með góðan mat og öl/rauðvín, kanski spila og svona, ekki eitthvað sem að kosta mikinn pening. Ég held að það verði raunin, að við verðum bara í einnhverri afslöppun, kanski að við splæsum á okkur bíl í einn eða tvo daga til þess að fara til Þýskalands og kaupa Benjammín (ost) og kanski nokkra öl kassa........þetta verður bara allt að koma í ljós.

En nú verð ég að fara að gera þetta verkefni þannig að við heyrumst síðar......

mánudagur, febrúar 02, 2004

Hh hó...

Þá fer að koma að því að ég fái nettengingu á Raskið (þar sem að ég bý). En það hefur alltaf gleymst að sækja um, en ég á því að fá hana á afmælisdaginn minn sem er á miðvikudaginn 4. febrúar.

Annars er bara lítið að frétta. Við erum búin aðskila af okkur íbúðinni á Skt. Hansgade en það mál er ekki alveg búið ennþá, því að við settum athugasemdir við skoðunina og það á því að skoða hana aftur eftir ca. hálfan mánuð. Allt í gangi þar........

Við látum ykkur vita síðar....


Ég er ekki ennþá kominn með símanúmer en ég hvet þá sem að vilja hringja að prufa númerið á raskinu sem að ég man ekki alveg í augnablikinu.

Annars læt ég ykkur vita um e-mailið um leið og ég fæ eitt stykk...

Þangað til þá....