miðvikudagur, október 08, 2003

Á köldum haustkveldi er ekkert betra en að fá sér kakó (eða svona Írskt kaffi) og kanelsnúða:

Kanelsnúðar!

3 dl mjólk, ylvolg
40 gr ger
75 gr sykur
100 gr smjör
1 stk egg
salt
700 gr hveiti (c.a)
1 msk kanell
2 msk mjólk


Aðferð:

Gerið mulið saman við mjólkina og 1 msk af sykri og látið standa þar til gerið freyðir. Á meðan er helmingurinn af smjörinu bræddur og síðan kældur. 2 msk af sykri til Viðbótar settar útí í mjólkina og síðan egg, salt, bráðna smjörið og svo mikið hveiti sem þarf til að deigið verði hnoðunarhæft en þó fremur lint. Hnoðað vel og síðan látið lyfta sér í a.m.k. 45 mínútur. Hnoðað, flatt fremur þykkt útí í aflanga plötu og smurt með afganginum af smörinu (þarf að vera lint).

Afganginum af sykrinum blandað saman við kanelinn og stráð jafnt yfir. Deiginu rúllað upp frá annarri langhliðinni og það síðan skorið í nokkuð þykkar sneiðar, sem er raðað á bökunarplötu. Snúðarnir látnir lyfta sér í um 20 mínútur og ofninn hitaður í 240c° á meðan. Penslaðir með mjólk og bakaðir í miðjum ofni í 12-15 mínútur.

Njótið

Engin ummæli: