miðvikudagur, apríl 20, 2005

Er búinn að vera á fullu...

...við að vinna sem vikar hjá ProfilMatch. Fyrirtækið sem að ég er að vinna hjá heitir aftur á móti Juliana og framleiðir gróðurhús í öllum stærðum og gerðum, póstkassa og hringsnúrur. Ég er að vinna á lagernum hjá þeim og það er BRJÁLAÐ að gera, eiginlega of mikið. Ábyrgðin er líka mikill miðað við að maður er ekki fastráðinn. Mér finnst það ekki sniðugt. En þetta er vinna og mikið af henni. Vinnutíminn er 7-15.35 nema á föstudögum þegar við hættum kl 12.30.

Annar er ekki mikið að frétta. Fótboltinn gengur ágætlega. Ég náði að spila í heilar 30 mínútur án þess að það liði yfir mig. Þið getið skoðað stöðuna og svona hér.

Jamms þannig er nú lífið hér...

sunnudagur, apríl 10, 2005

Atvinna í augsýn...

Maður veit aldrei. Fór í prufu á veitingastað á fimmtudaginn. Leist vel á staðinn. Held að þeim hafi litist vel á Ágúst líka. Frekar lítill staður, aðeins 3 starfsmenn á öllum veitingastaðnum. Það er semsé Yfirkokkur og eigandi, kokkanemi og einn þjónn. Staðurinn tekur ekki nema 25 manns í sæti og svo er 35 manna salur í kjallaranum. Þeir sem að þekkja mig og hafa einhverntíman talað við mig áður en ég flutti út þá eiga þeir að vita að þetta er sá staður sem að ég vildi helst komast inn á sem nemi, en ég hef aldrei þorað að sækja þar um því að ég hef alltaf haldið að þeir væru ekki með nema. En nú er ég semsé búinn að sækja þar um, fara í prufu og er núna að bíða eftir svari frá honum Jacob sem er eigandinn. Hann Jacob er einungis 34 ára gamall og er búinn að vinna á mörgum michelin stjörnu stöðum í bretlandi og frakklandi. Hann vinnur aðallega úr dönsku hráefni og er með traditional danskan mat með smá nýbreittni. Matseðillinn hljómar upp á 6 rétti og breitist á 3 vikna fresti. Samanstendur semsé af forrétti, fiskrétti, 2 kjötréttum, ostadisk og eftirrétti. Þetta er frekar dýr staður þar sem að 6 réttir kosta 490 d.kr.

Mér líst alveg rosalega vel á þetta og er temmilega bjartsýnn. Á von á svari í kring um 1. maí 2005.

mánudagur, apríl 04, 2005

Berlín...

Hæ!

Við Þóra skruppum til Berlín um helgina með Axel og Ólöfu. VÁ! Það er líklegast besta lýsingin á þessarri sögufrægu borg. Ég á ekki til orð. Á líka eftir að fara þarna aftur og vera þá lengur vegna þess að ég sá ekki nærri því allt sem að ég vildi sjá. En við sáum það "markverðasta" ef að það má orða það þannig. Aðal verslunargötuna, Brandenburgarhliðið, sigursúluna, minnisvarða um Nasistatímabilið sem er sett upp í rústum kjallara SS höfuðstöðvana. En þær voru sprengdar upp eftir stríð. Checkpoint Charlie var líka gaman að skoða og svona. Veðrið var æðislegt, heiðskírt og 20°C hiti, svo skemmdi ekki fyrir að flestar verslanir voru opnar til kl. 24 á laugardaginn þannig að það var hægt að versla svolítið líka. HEHE.

Góð ferð í alla staði, við Þóra erum að vinna að ferðasögunni en hún er svo umfangsmikil að hún verður að bíða betri tíma, þið skoðið bara myndirnar á meðan.

Góðar stundir.

p.s. skellti líka nokkrum myndum inn frá páskunum.

föstudagur, apríl 01, 2005

Ferðalag...

Ég og Þóra erum farin hingað. Við heyrumst eftir helgi.