Æjæjæjæjæj
Eitt í viðbót....
BAggalútur var að gefa út sitt árlega jólalag og ég gat nú ekki annað en sett það hérna inn svona fyrir rokkarana...smellið á hlekkinn GLEÐILEG JÓL...
Gleðilega hátíð!!
GLEÐILEG JÓL
jafnan má á himni sjá
er jólin erað bresta á
amerískan ístrubelg
og yfirlýstan kólasvelg
hann dúkkar upp í desember
með djöfulgangjum sveitir fer
en hvað hann vill er verrað sjá
vandi er um slíkt að spá
---
nafn mitt er Nikulás - kallaður Klás
norðan úr rassgati kem
á sleðanum hef ég af gjöfunum glás
með gaddavír hreindýrin lem
í eldgömlu skinninu iða og brenn
ég ætla að syngja það einu sinnenn
Gleðileg jól - og gæfuríkt ár!
Gleðileg jól - farsælt nýtt ár!
á tvöföldum ljóshraða tæti ég um
týndur og þambandi malt
nötrandá blóðrauðum náttfötunum
með nábít og hálsbólgog allt
en þó ég sé slæptur í slabbi og byl
af sleðanum heilagan boðskapinn þyl
Gleðileg jól - og gæfuríkt ár!
Gleðileg jól - farsælt nýtt ár!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli